~afmælis mamma~

Hún elsku góða mamma mín á afmæli í dag. Hún er best. Eins og allir sem þekkja mig vita. Þarf kannski ekkert að tíunda það neitt frekar. En ég bölva samt kílómetrunum sem aðskilja okkur í dag. Vildi nefnilega helst af öllu í heiminum vera heima í dag. Og eyða afmælisdeginum með henni. Við erum nefnilega afmælisbörn, báðar, -og elskum alveg afmælis. Mamma var t.d alltaf manískur bakari fyrir mín afmæli, -sem barn. Þangað til ég tók sjálf yfir, -eftir að Mikka-Mús matreiðslubókin góða komst í mínar hendur. Ég er sem sé alveg búin að margpanta að verða eins mamma og hún, -nú þegar styttist óðum í það spennandi verkefni. Ætla að halda alveg eins extreem over the top flott barnaafmæli og hún hélt fyrir mig forðum þrátt fyrir að hún ætti aldrei neina peninga til þess. Vildi bara óska að ég gæti endurgoldið henni greiðan, -í dag og haldið stórt partý. Með kökum og allskonar fíneríi.

Bestustu barnaminningarnar mínar tengjast augljóslega henni á einn eða annan hátt og í dag líður varla sá dagur sem við kjöftum ekki í minnst tvo tíma í síma. Ég segi henni líka allt, enda ennþá óttalegt mömmubarn þrátt fyrir téðan aldur minn og ábyrgðarstöðu. Ætli maður hætti einhvern tíman að vera litla barnið hennar mömmu sinnar? Ég held ekki.

Ég skal mála allan heiminn elsku mamma,
-eintómt sólskin, bjart og jafnt.
Þó að dimmi að með daga kald og skamma,
-dagir þínir verða ljósir allir samt.
Litlu blómin sem þig langar til að kaupa
-skal ég lita hér á teikniblaðið mitt,
Ég skal mála allan heiminn elsku mamma
-svo alltaf skíni sól í húsið þitt.

Óskaðu þér mamma alls sem þú vilt fá,
-ennþá á ég liti, til hvers sem verða má.
Allar heimsins stjörnur og ævintýrafjöll
-óskaðu þér mamma svo lita ég þau öll !!

Þetta er eitt algjört uppáhalds, sem minnir mig á mömmu ... og mig sem litla mömmustelpu. Mér finnst það eiga svolítið vel við í dag. Þegar manni langar að gefa mömmu sinni í alvörunni allan heiminn, en getur það ekki því litlar stelpur eiga enga peninga til þess, -og stórar eins og ég búa í öðru landi og komast ekki til mömmu sinnar.

11. nóvember 2009 klukkan 08:43
Íris Hauksdóttir
Ylfa skrifar ...
Innilega til hamingju með fallegu mömmu þína elskan mín. Það er svo yndislegt að eiga svona mömmur sem láta mann langa til að verða bestasta mamman í heiminum líka.
Vonandi geti þið notið dagsins "saman" að einhverju leiti. Þið eruð allavegana með hvor aðra í hjartanu - það sést langar leiðir :)
11. nóvember 2009 klukkan 09:38
Erla skrifar ...
Æjj dúllan´ðín!

Þið eruð ekkert smá heppnar að hafa hvor aðra að

Knús yfir hafið mín ljúfust***
12. nóvember 2009 klukkan 19:02
Mammsasamsa skrifar ...
Elskulega fyrirmyndarbarnið hennar mömmu sinnar...takk fyrir fallegustu afmæliskveðjuna.
12. nóvember 2009 klukkan 22:26

Skrifa athugasemd

Aðalvalmynd

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

Auglýsing

Tenglar

Innskráningar kubbur

Flokkar