~jólakúla í ár .. mamma ađ ári ~

Dagarnir á Íslandi eru yndi. Hver öðrum betri enda uppfullir af aðventu og allskonar jóla. Hittingar allra uppáhalds og skemmtilegheit út í eitt. Jólasmákökurnar allar komnar í yndislega fallegu jólaboxin sín (eða beint í hina sístækkandi bumbu) og frystirinn líka fullur af heimagerðum jólaís. Óléttan gefur með öðrum orðum taugatrekktum áróðusröddum um hrá egg í ís og sörum langt nef og gæðir sér á góðgætinu, -í hófi. Malt, mandarínur og möndlur hér á borðum hvern dag í bland við himneskan mömmumat og ömmukökur, -enda allir dagar í desember laugardagar. Jólagjafirnar og skólaeinkunnir óðum að skila sér í hús og kenning Finns um tvöfalda heilastarfsemi mína þessa dagana heldur betur að reynast sönn enda öruggt að fullyrða að einkunnirnar hafi aldrei verið hærri. Hrikalega skemmtilegt, -og hvetjandi, á sama tíma og væmna hjartað hefur náð nýjum hæðum enda stöðugt glatt af yndis-fólkinu allt um kring. Ofur-amma reiðir fram hverja prjóna og bútasaumssnilldina af fætur annarri og vinkonur verðandi móður bæta líka stöðugt í gullkistu litla gulls með krúttgjöfum svo hjartað hreinlega ískrar af væmni. Mér finnst betra að gefa en þiggja.

Litla kúlan gengur orðið um í bylgjum og sirkusbarnið sparkar nú nánast eftir pöntunum, öllum í kring til mikillar gleði og ánægju. Kynjapælingar eru næstum allsráðandi í bland við nafnahugmyndir sem mamman elskar að ræða. Næstum öllum finnst bumban samt ákaflega smá í sniðum og furða sig á “penheitunum” í samræmi við mánaðafjöldan sem telur nú sjö.


Ef frá er talinn fjarvera Finns sem kemur ekki á klakann góða fyrr en seint á Þorláksmessukvöld, mega jólin nú alveg fara að koma. Allar stress-raddir tengdar jólahátíðinni þekkjast með öðrum orðum ekki í litla koti lindanna enda snúast jólin um svo miklu meira en bara búðarferðir. Ég er sem sé búin að finna hinn sanna anda jólanna sem að þessu sinni er undir smá áhrifum norska-landsins þar sem meira snýst um samveru en eyðslu á fjármagni.  Ég verð samt að viðurkenna að tilhugsunin um jólin að ári fá litla hjartað til að taka eins og eitt gott auka-gleði-slag enda bæði ólýsanlega skrítin og skemmtileg um leið. Jólakúla í ár, mamma að ári.

17. desember 2009 klukkan 17:52
Íris Hauksdóttir
Olga skrifar ...
Hæhæ -- ég rambaði hérna inn á síðuna þína og ákvað því að kvitta fyrir mig :)
Skemmtilegur penni þú !
Já þetta er sko alveg yndislegt að vera með lítið kríli svona um jólin og verður allt einhvervegin miklu jólalegra - svo að það verður alveg yndislegt hjá ykkur að ári :)

kv, Olga Huld
18. desember 2009 klukkan 22:11
Jónína skrifar ...
Til lukku með góðar einkunnir!
Frábært að heilastarfsemin hafi tvöfaldast....þú kynnist svo brjóstaþokunni góðu þegar krílið er komið og mannst ekkert stundinni lengur...það er mjög hressandi ;)Kallinn orðinn hundleiður á að endurtaka allt 10 sinnum og svona. Held samt að skólinn sé undantekning því mér hefur einmitt aldrei gengið eins vel og nú ;)
Ég er einmitt mjög spennt fyrir jólunum núna og ég held að það sé skynsamlegt að eyða frekar í samverustundir en pakka þar sem það er nú ekkert gefins að eiga barn í dag ;) Á næsta ári verður litla baunin þín alveg jafn gömul/all og kúturinn minn....BARA skemmtilegt!
19. desember 2009 klukkan 21:16

Skrifa athugasemd

Ađalvalmynd

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Ţennan mánuđ: ...
  • Frá upphafi: ...

Auglýsing

Tenglar

Innskráningar kubbur

Flokkar