16ágúst

Þránheim í myndum...



Byrja eðli málsins samkvæmt á skólanum okkar
...svona leit hann út í morgunsólinni...
Þegar við skröngluðumst upp þver bratta brekkuna
-soldið eins og kirkja
En fallegur er hann Svalur



Við erum svo með Dómkirkjuna næstum í gluggasillunni
En borgin er fræg fyrir fegurð hennar
-hljómar núna eins og ég sé einn heitasti talsmaður "Trondheims" en jæja



Svona var úsýnið á leiðinni í skólann
...myndin er tekin á brú nokkurri...
Og áin spegilslétta heitir Nyð



NTNU séður "aftan frá"
Þetta er einmitt á skólasetningunni
...ef vel er að gáð er hægt að glitta í allan þann mikla fjölda nýnema sem mættu þennan dag...




...Meðal annars þessi tvö...



Ekki amalegt útsýni það
...út um "læru-gluggann"...



Þessi mynd er svo tekin fyrir utan Sverres-götuna
-af leikhúsinu-



Og ein að lokum af AMMLISS "hlað-borðinu" hans Finns
-soldið svona eins og Rósa segir;
...kringler og julekager...

Svalur
16. ágúst 2007 klukkan 17:37
Íris Hauksdóttir
Engin athugasemd
15ágúst

Fyrsti gesturinn...

Dyrabjöllunni við SVERRISGÖTU 8 var dinglað hér árla morguns...

Skötu sem nýlega hafa komið sér þar fyrir óraði ekki fyrir gestagangi svo fljótt eftir komuna...

-en það var þá bara "sendillinn" okkar frá TNT

Búumst ss ekki við miklu álagi á bjölluna okkar
(nema við eignumst norska vini JAHAAA)

Opnunarhátíð NTNU í gær var vægast sagt mögnuð
Ótal ótal nemendur, sem allir eru að BYRJA
...við sáum ss ekki nema brotabrot af öllum sem ERU í skólanum
Nemendafélögin kynntu starfsemi sína og lukkutröll sýndu listir sínar
...vatnsbrúsar merktir skólanum, lyklakippur, dagbækur og fleira smálegt var hægt að fá for free, og núna eigum við Finnur líka "studentes samfundeskap" skírteini  (eða nemendafélagskort) 
Með því fáum við ódýrari bækur, bjór og í strætó, svo dæmi sé tekið.

Alls stóð hátíðin í tæpa 6 tíma, en dagurinn byrjaði á því að við hófumst handa við að leita að "réttri" strætó-stoppustöð. Loksins þegar hún svo komst í leitirnar fannst okkur sólin bara alltof skær til þess að "labba ekki", svo við ákváðum að athuga hversu lengi maður væri á leiðinni.

Í beinu framhaldi má taka það fram að íbúðin okkar gæti ekki verið betur staðsett, alveg Í miðbænum...
-nema hvað, labbið tók alls ca 20 mínútur, sem er EKKERT mál, einkum og sér í lagi þegar veðrið er svona gott
(lofa engu í vetrarhörkunni sem mér skilst að sé framundan)

Eftir skólasetninguna gafst nemendum færi á að ræða við allskyns upplýsingafulltrúa, móttöku-konur og alþjóðaskrifstofu-fólk
-sem við og gerðum
Með það í huga hvað okkur fannst lítið mál að labba var ógeðslega fyndið að heyra eina konuna fullyrða við okkur (í tengslum við strætó-kort) að ómögulegt yrði fyrir okkur að kaupa slíkt fyrr en eftir 1 september....
-og ástæðan, "jú höfuðstöðvar strætó eru sko niðrí bæ"
...eins og það sé æðislega langt í burtu "og alveg ómögulegt að nálgast"

Skólinn minn byrjar svo að fullu föstudaginn 17. ágúst en Finns ekki fyrr en á mánudaginn...
-í millitíðinni eru svo eins og tvö "welcome party" og allof mikið af farangri til þess að planileggja og koma fyrir...

Ég vil að lokum þakka starfsfólki H&M verslanana fyrir góða þjónustu í gær, og vonandi tekið allt til eftir mig líka Ullandi

Í dag er svo AMMLISS-STRÁKUR á "heimilinu"
...gamla arkaði út í bakarí fyrir allar aldir, að færa gamla manninum sínum eitthvað gott í gogginn...

-lofa lofa lofa þetta verði líka eina ammliss hans sem ég baka ekki
*grát*
...þar sem ég á hvorki þeytara né nokkuð sem maður notar til baksturs
15. ágúst 2007 klukkan 10:26
Íris Hauksdóttir
3 athugasemdir
13ágúst

Komin!

Til Noregslandsins

Eftir frekar erfitt ferðalag erum við loksins mætt í
SVERRISGOTUNA

Bjuggumst við hinu versta enda stærð íbúðarinnar
...ekki til þess að hrópa húrra fyrir...
En ótrúlegt en satt reyndist hún vera talsvert stærri en 
við áttum von á
-þannig lagað séð

...að vísu veit ég ekki hvernig allir pappakassarnir, 
skíðin, hjólin og snjóbrettið eiga eftir að rúmast í þessu 
litla litla plássi

-en það verður hressandi að koma öllu fyrir án þess 
að urlast úr pirringi yfir "allt á kafi í drasli" fílingnum

-ég er soldið soleiðis
SKIPURLAGSFRÍK

Ferðin gekk sem sagt heldur erfiðlega 
þar sem tvísýnt var á tímabili með millilandaflugið okkar
...eftir seinkun fyrri vélarinnar
 
Svo við urðum að HLAUPA allan Oslóar-flugvöllinn
...með gönguskíðin á bakinu

Mættum svo SVEITT í vélina og hófumst handa við að lesa 
Norsku dagblöðin
-skildi meira að segja smá

En þar sem við lentum svo seint var kollegið lokað
...og við urðum að gista hjá vinnufélaga Finns
-við bryggjuhverfið
Og þaðan fórum við morguninn eftir með allan þunga handfarangurinn
...í leit að kolleginu
-hinum megin í bænum
(ætluðum ss að vera óggisslega "séð" og taka smá farangur með)
Fundum loksins MOHOLT og fengum lyklana að SVERRISGOTU
...svo þaðan lá leiðin næst
Eftir að hafa andað smá lögðum við aftur af stað í fína hverfið
og sóttum þangað restina af farangrinum
...þegar þarna var komið sögu voru gömlu orðin óhugnarlega svöng
Og fengum okkur McDo (sem lýsir kannski best HVERSU svöng við vorum) að nenna ekki að leita að neinu skárra
Eftir matarpásuna lá leiðin í IKEA en þangað er svolítill spotti svo við tókum TAXA. Í IKEA gátum við verslað heil ósköp og vorum satt best að segja steinhissa þegar við sáum hvað full kerra af allskyns kostaði í raun lítið, enda áttum við EKKERT. Ekki einu sinni hníf til þess að skera GEITAOSTINN sem Finnur er búinn að lofsama í allt sumar.
...ég þarf varla að taka það fram að á þessu stigi máls var hamsturinn (ég) búin að kría út ferð í matvöruverslun enda veit ég fátt skemmtilegra en skoða nýjar matvörur, og fylla tómann ískápinn
-veit samt ekki af hverju

Af bænum okkar er það annars að frétta að Þrándheimur er bara alls engin "sveitó-borg" eins og ég hélt
Hreint ekki, heldur þver á móti. Því til staðfestingar get ég talið upp þau þrjú MOLL sem ég hef rekist á (alveg óvart) 
Húsin hérna minna einna helst á sögusvið bókmennta eftir eina mína uppáhalds; ASTRID LINDGREN.
Bíð sveim mér þá eftir að sjá Línu Langsokk skokka hér um með Herra Níels á öxlinni og svo er ég ekki frá því að fánastöngin sem Emil hífði Ídu sína upp sé einmitt hérna í næsta garði. Börnin í Ólátagarði vöktu okkur t.d í morgun með tilheyrandi hrópum og köllum og ekki yrði ég hissa ef Maddit og Beta myndu láta sjá sig við skólasetninguna á morgun.

Með öðrum orðum er húsastíllinn hér í borg í anda Art Deco, fyrir þá sem hafa lesið sér til í listasögu og bryggjuhverfið (sem og ógnarstór verslunarmiðstöðvarhúsin) fá hörðustu borgarbörn (eins og mig) til að bráðna, og viðurkenna um leið að Reykjavík er nú ekkert svo stór og merkileg, þegar öllu er á botninn hvolft.

Annars er skólasetningin á morgun með tilheyrandi veisluhöldum Höfum séð myndir af hátíðinni og hún er sem dæmi fjölmennari en GAY PRIDE í Reykarvík

Stór dagur sem sagt framundan og erfiður "fyrsti dagur" að baki

...kveð, með fyrsta orðinu sem ég lærði, á nýja málinu...

-Ha de brat


13. ágúst 2007 klukkan 20:38
Íris Hauksdóttir
Almennt
6 athugasemdir
11ágúst

NTNU að skella á...

Jæja nú er allt að bresta á

Síðasti dagurinn í vinnunni minni í dag
...og þar með síðasta lottó-gleðin líka...

Búin að kveðja skvísuskottin mín
...og næstum alla *UPPÁHALDS* mína...

Sætti mig við það að ég er dramadós
-og á ógeðslega erfitt með að segja bless-
Veit ekki afhverju
En skvísurnar mega góðar við mig að taka bara undir afneitunina
...öfugt við frænkuskotturnar...
*grát*

Annars hef ég þjáðst af VÆGU *kvíðakasti* undanfarna daga
...fæ bara ógleði og svimahrylling við að hugsa til alls sem ég á eftir að gera...
-veit bara aldrei hvar ég á að byrja-

Fórum nú samt með *brettið* okkar í TNT í gær
...miklu fargi þar af mér létt...
Og fékk aftur smá pláss í herberginu, til að setja niður í næstu tösku
...sem ég er btw ekki byrjuð á enn...

Afneitun?

Langaði bara mest á *GAY PRIDE*
-og gleyma- 
11. ágúst 2007 klukkan 14:56
Íris Hauksdóttir
2 athugasemdir
06ágúst

I'm Ron Burgundy?

Framdi eitt fyndnasta prakkarastikið á dögunum
-að eigin mati-

Bogi les: "Gott kvöld, nú hefjast seinni fréttir sjónvarpsins, miðvikudaginn ....*boga* ágúst"

...þarf kannski að fylgja sögunni að mitt starf felst meðal annars í að semja téðan texta fréttaþulunnar Saklaus

Gargandi einkahúmor kannski
...en það er gaman í vinnunni...
Tými varla að hætta

Annars er "fyrst"i í *kveðju* liðin
Stóra frænk stakk mig af til Kanada og þurfti því að knúsa bless á undan öllum hinum
-og úúúúfffff-
Pant ekki aftur
....við erum nottla báðar vælur, svo vægt sé til orða tekið...
Samanber það að "aldrei kvaddi ég Pingu" þegar hún stakk mig af til Flórens

Núna er allavegna einum færri af öllum UPPÁHALDS sem ég á eftir að segja BÆ við
-drama?

*KVEÐJUPARTÝ* tókst líka vel
...eins og allt sem hefur verið að gerast undanfarna daga...
-Pinga 25
-Frænku/Frændaboð Finns
-Skvísumyndataka
-Ótal ótal "kveðju" matarboð

...Finnur er líka alveg að verða 26 "gaaamli kaaallinn"
Heldur upp á *AMMLISS* degi eftir að við komum út Svalur

...og já ég var næstum handtekin á ÖLSTOFUNNI fyrir að taka mynd af Konna og Elínu
-stuttu síðar komst Elín að því að helvískur dyravörðurinn hafði stolið veskinu hennar-
Notes to self...
Aldrei aftur á ÖLSTOFUNA Öskrandi
06. ágúst 2007 klukkan 13:34
Íris Hauksdóttir
Engin athugasemd
01ágúst

NEWS

Við erum komin með íbúð



*SVERRESGATA*

...alveg pínkupínku lítil...
-svo lítil að við getum ekki einu sinni haft pláss til að skipta um skoðanir þar inni-
(eins og erlan mín orðar það)
Ullandi
01. ágúst 2007 klukkan 14:53
Íris Hauksdóttir
Engin athugasemd
28júlí

Þetta helst...

Æj veit eiginlega ekki hvar ég á að byrja...

En sumarið er vafalaust ekki tíminn til að blogga Ullandi

Held samt þetta sumar sé mitt persónulega *MET* í ferðalögum og flakki *innanlands* Svalur

-byrjaði á skvísu-útilegu-ferð í *ÁLFASKEIÐ*
...sem var *ÆÐI* í alla staði...

-þaðan flugum við *skötu* austur á Egilstaði
...og flökkuðum þar um firðina...
Keyrðum svo "hálf-hringinn" heim, ásamt Vidds&Agnesi

-helgina eftir það slógumst við *gömlu* svo í för með fjöllunni minni vestur
....og skoðuðum sveitina hennar Ömmu
Og fallegustu fjöruna "hennar" í *RAUÐSDAL*
...klifruðum upp *LÁTRABJARG* 
Og gægðumst inn um gluggann á gamla húsinu sem mamms ólst upp í á *PATREKSFIRÐI*
...ógó gaman allt saman...
Svalur

Ég hef hins vegar EKKER heiðrað miðbæinn með nærveru minni þetta sumarið
-tjéður aldur?

Burstaði hins vegar *DANSISKÓNA* mína í gær og viðraði kokteilakjólinn með bjútískvísunum í flotta flotta húsinu hennar Bergó og síðan á *OLIVER*
-yndi gaman það-
Svalur

Mál málanna þessa dagana er hins vegar það, að við *gömlu-skötu* flytum af landi brott sunnudaginn 12. ágúst Koss
-takk fyrir pent-

Af því tilefni verður *KVEÐJUTEITI* laugardaginn 4. ágúst Svalur

...og so audda allir velkomnir til "Tröndheim"

Annars bara allir dagar planilagðir undir "síðustu-hittinga" allra minna uppáhalds sem ég á eftir að sakna svo mikið
-í útlegunni-
....æj vá ég get verið svo dramatísk!

Næsta vika samastendur sem sagt af 
-SkvísuMyndaTöku
-Ómar&Hrefnu hitting
-Önnu&Adda hitting
-Krissu&Kristó hitting

...og auðvitað RISASTÓRUM frænkuknús!


Awwwww

 

28. júlí 2007 klukkan 13:30
Íris Hauksdóttir
Engin athugasemd
18júlí

Allskyns...

Mmmmm það er svo sannarlega gott að búa á Íslandinu góða þegar sólin skín svona fallega eins og síðustu daga Koss

Ég er búin að hafa það ógeðslega gott og tjillað á pallinum fína í Ljósalandi eins og enginn sé morgundagurinn

Borðað lágmark einn ís á dag (stundum tvo)

Grillað rosalega mikið af grillmat (enda á ég óggisslega góðan grill-kall)
 
Pabbi Finns átti líka afmæli á dögunum. Ég á ekki pabba en ef ég ætti einn slíkan vildi ég óska að hann líktist honum Flosa Glottandi

Annars erum við Finnur búin að fá *JA* í útlandaskólana okkar Hlæjandi
....og þess vegna alveg á kafi að skoða *STÚDENTAÍBÚÐIR*
-víðs vegar um Norðurlöndin-
Fengum sem sagt bæði inn í Stokkhólm-Gautaborg-Kaupmannahöfn og títtnefndan Þrándheim... 
Maðurinn minn (sem slær mér við í þrjósku) hefur hins vegar bitið það í sig að Þrándheimur skuli það vera og sendi mér þessa mynd á dögunum af "fínu íbúðinni okkar þar"


...ekki amalegt það Glottandi

Annars er ég farin að vinna
-geri það nefnilega stundum líka Svalur

18. júlí 2007 klukkan 13:44
Íris Hauksdóttir
2 athugasemdir
15júlí

Bloggheimur...

Eitt af mínum uppáhalds bloggum eru vangaveltur *MENGELLU* á samnefndum vef

Nú síðast fjallar hún um mótmælendurna sem virðast vera gera allt vitlaust í miðbænum og kallar þá "metnaðarlausa iðjuleysingja, sem grípa þann auðvelda kost að rúnka sér á ólgandi og ofureinfölduðum málstað. Styrksjúgandi unglingaklíkur. Hugsjónirnar aukaatriði."


....Heyr heyr
15. júlí 2007 klukkan 16:32
Íris Hauksdóttir
Engin athugasemd
04júlí

Sumargleðin

Skvísuklúbburinn kann sko að leika sér á sumrin
...grilla og hafa það næs....



-gaman saman-
...í sólinni...

Skoðuðum líka nýju fínu flottustu íbúðina hennar Ingu Pingu
....HofAkurinn...
-þar sem ófáar grillveislurnar verða vafalaust haldnar-

Plönilögðum helgina
...og af nógu að taka...
Útilegan í ár verður nefnilega staðsett að
*FLÚÐUM*
Hryllilega spennandi í ljósi þess að við skvís höfum testað nýja og nýja staði á hverju ári
-hver öðrum skemmtilegri-
...þrátt fyrir skyldurigningu...
(sem er aldrei boðið en kemur alltaf samt)

Eftir útileguna góðu tökum við *skötu* svo stefnuna austur á
*EGILSTAÐI*
Finnur svo sem vel kunnugur þar
..og ég pínu líka, smá..

En þar eru Agnes og Viddi með bústað
...og Gunnar, Christine og Ziggie með fellihýsi...
Ætlum að tjilla með þeim í góðu yfirlæti í tæpa viku
-takk fyrir pent-

Á to do listanum er meðal annars
-veiði
(bátur sem fylgir húsinu mun vafalaust koma að góðum notum)
-golf
(að hætti amatöra)
-gúff allskyns Ísisar stuffs
(grilluð súkkulaðikaka með sykurpúðum spilar sterkt mót)
-göngur
(svona þegar marr er komin upp á lag með göngustafina góðu)
-spil
(pökkuðum svo HELLING af skemmtó)
-skoða landið
(inn í því felst, óhjákvæmileg hringferð fram og til baka og
tjaldgisting í Ásbyrgi)

...og fleira og fleira skemmtó skemmtó...

En þangað til á ég eftir að mixa eina fjóra fréttapakka
..sem og pakka niður...
-kaupa göngusokka-
Hva eldar marr ananrs á einnota grilli?
Koss
04. júlí 2007 klukkan 15:08
Íris Hauksdóttir
2 athugasemdir

Aðalvalmynd

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

Auglýsing

Tenglar

Innskráningar kubbur

Flokkar