31október

-afmćliss ..

Afmælisbarn dagsins er litli frændi minn Bjé
-sem er reyndar ekkert svo lítill lengur
...orðinn pabbi...!!
-og virðulegur sálfræðinemi
Í tilefni dagsins ætla ég að birta mynd af barninu hans, ÍsAfOlD sÖlKu sem heiðrar mig stundum á skype með nærveru sinni. Pabbi hennar, afmælisbarnið, er einnig ákaflega duglegur að updeita mig um hraðvöxt barnsins, með mynd-sendingum. Sem mér finnst endalaust gaman.
Barnið er reyndar að slá öll með að flýta sér að verða stór, mér til mikillar óánægju, því eins og ég hef áður komið inn á, er ég svo mikið að MISSA af...!!
Hér er Salka sídansandi, í hlutverki magadansara, og ferst það vel af hendi, enda ekki langt að sækja hæfileikana.

Þúsund kossar í tilefni dagsins
-við Finnur skálum í kampó í kvöld
...þér til heiðurs
(og líka smá af því Finnur er LOKSINS að koma heim)
-sjensinn bensinn samt við eFf ættum samt efni á kampó
Tongue out
31. október 2008 klukkan 11:53
Íris Hauksdóttir
Engin athugasemd
30október

-lengi getur vont...

Ástæða þess að silfurskottur finnast í húsum hér á landi er einfaldlega sú að þær sækja í aðstæður þar sem þeim líður vel. Í baðherbergjum er oft hátt rakastig sem eru kjöraðstæður fyrir silfurskottur og sækja þær því gjarnan þangað, vaxa þar og tímgast.

Kvendýrið verpir eggjum víða í sprungur og smáglufur í baðherberginu þar sem þau loða vel við undirlagið. Verulegar líkur eru á að fólk beri þessi egg milli húsa án þess að vita af því, og þannig flytjast silfurskottur frá einum stað til annars.

Já ég vil eiginlega þakka snillingunum á vefsíðutryllinum GOOGLE og WIKIPEDIA fyrir alla hjálpina.
-og stuðninginn...
Núna finnst mér ég samt eiginlega vita aðeins OF mikið ... !!
-um silfur...
**SKOTTUR**
(en ég meina GOTT að ég bý þeim svona ansk* notalegt umhverfi og allt það)

Fann aðra í svefherbergis-álmunni í dag
(okjei djókið með ÁLMUNA er ekki fyndið nema hafa komið í skápinn)
-kalla hann reyndar Skottu-Skápinn þessa dagana

Nema bara hvað...

Nú ákalla ég samt lesendur mína,
í ýtrustu neyð
-án gríns
Um ráð

Svo þið sem vitið
PLÍS
segið mér
Er sjens, fræðilegur möguleiki, að skottunar -smitist- það er að segja, eftir að meindýraeyðirinn hefur komið, og unnið sitt göfuga starf...
-hvað verður þá um sængina okkar eFf´s
...og fataskápinn?
Er allt bara nú þegar gegnsíjað af PÖDDUM?

...og klæjar einhvern eftir þennan lestur, eða er það bara ég?
30. október 2008 klukkan 00:04
Íris Hauksdóttir
1 athugasemd
27október

...af silfurskottum ofl

Í síðustu viku hef ég:

Barist við silfurskottur og risa-köngulær, oftast með sigri yours truly. Er næstum því alveg hætt að kippa mér upp við mjög svo óvelkomna nærveru þeirra, en þær eru farnar að færast allverulega upp á skaftið. Skjótast fram úr felum sínum hvar og hvenær sem er. Verst finnst mér samt að læðast fram á klósettið seint að kvöldi, eða snemma að morgni (nú eða það sem allra verst er, þegar enn geysar há-nótt og ég er ALEIN, með enga ofurhetju mér við hlið til að senda fram, og rýma fyrir)
-kveikja svo ljósið, og bíða í von eða óvon um, hvort þeirra ófríða fjési bregur fyrir. Stundum eru þær líka svolítið seinar að koma sér í skjól, og þá þarf ég að grípa til tissjússins. Ijjúúú ... !!
Norsku köngulærnar eru svo kapítuli út af fyrir sig, aðra eins stærð á kvikindum, í *mannabústöðum* (en ekki dýralífsmyndum frá Afríku) hef ég aldrei séð.
-og þá dugir tissjúið skammt, neibb, ekkert minna en stór og sterkleg *drápstól* ...og oftar en ekki eru það spariskórnir hans Finns sem verða fyrir valinu (og ekkert af neinni tilviljun, því ég vanda honum sjaldnast kveðjuna þegar ég hírist í hræðslukasti í kompu fullri af pöddum meðan hann sprangar um langdvölum -víðsfjarri í hreinu hótel-herbergi) Tissss

En auk afreka minna í meindýramálum, hef ég líka, lesið eins og vindurinn, og halað í kjölfarið inn afbragðs einkunnum, hægri vinstri. Held þessi vetur slái alla fyrr út, hvað proffa-stæla varðar. Veit ekki hvað veldur, fjarvera Finns eða meiri metnaður með aldrinum. Áhugaverð pæling það.

Fundið fyrir fyrsta vísi af jólaskapi ... !!
...ekki samt af umhverfinu mínu, því í ÞrÁnDi er enn haust...en íslensku blöðin, sem ég renni í gegnum daglega, sem og íslenska sjónvarpið, sem ég kíki stundum á, í nostralglíu-kasti eru STÚTFULL af allskyns **jóla** og þá þarf ég alveg að hemja mig. Á svo erfitt með að verða ekki -jólasturluð- í september, og nú er október bráðum búinn, svo í raun og veru er ég bara góð...óvenju "sein" í ár...og "má" satt best að segja fara hækka í græjunum þá og þegar, og æra íbúa **sverriss** með jólahjóli og öðrum sígilldum slögurum.
-jólaplanið á íSlAnDiNu er allavegna alveg að verða fullbókað, eins og góðum skipurleggjanda sæmir. Og alveg alltof margt og mikið spennandi og skemmtilegt framundan hjá mér þá :D ...sem er best!! Ég er líka svo rík, að eiga eintómar ofur-planara-vinkonur, svo þegar MsN er annars vegar er eiginlega OF auðvelt að missa sig í skemmtilegum planileggingum. Oh **getekkibeðið** ... !!

Já ég bókaði líka flug...
****þRiÐjA dEsEmBeR****
...en dagsetning fyrir siðasta prófið er ekki enn alveg komin á hreint...
Þannig ljúfa lífið á Íslandi verður á smá hold fyrri part desembers.
Finnur kemur svo um miðjan mánuðinn

Á laugardaginn dustaði ég svo rykið af **PaRtÝ-gAlLaNuM** sem hefur í bókstaflegri merkingu safnað ryki síðan í sumar
...kíkti í partý með norska tvíeikinu Önnu&Hönnu...
Sem var ljúft, og gaman að komast aðeins út, meðal fólks
Anna var að koma heim frá Íslandi, þar sem hún heimsótti ísbúðina "mína" og vini mína í nammilandi, og kolféll svo auðvitað fyrir íslenskum tónlistarmönnum þess á milli enda airwaves alveg í hámarki. En ekki hvað.
Hún hitti líka mömmu, sem gat ekki af henni og ferðatöskunni hennar séð, nema gauka að henni -smá- fyrir stelpuna sína. Svo til sunnudags, fékk ég slátur og MAKKARÓNUVÍNABRAUÐ ...!! DekurrófuDósin ég :D
...sem er líka farin að venjast því að vera grasekkja...
27. október 2008 klukkan 13:05
Íris Hauksdóttir
1 athugasemd
23október

hVeRjAr ErU bEsTaR!!


bestustu og fallegustu systur norðan alpa,
-eru þær sem búa í bláu sölunum í honum kópavogi mínum
sverða!!
...skrifað og skjalfest

ætla líka alltaf að passa þær
-og vera bestust
...og þeirra mestust uppáhalds
(þó samkeppnin sé stundum svolítið hörð)
ég vinn samt, af því ég vill það!

finnst þær allavegna flottastar
...og fyrir utan ömmu-mús, eru það þær sem ég fæ mest illt í hjartað yfir söknuði til, þegar norsku næturnar taka yfir, og ég hætti að vera glöð, í smá stund
finnst minnst töff að missa af þeim
-en um leið skemmtilegast þegar AnNaN mín hringir
***SæTuSt***
(í heimi sko)
sverða!!

...held að Finnur sé líka smá skotinn í henni...
Bregður allavegna alltaf fyrir hann sérstakt bros þegar ég í heimþráartryllingnum minnist á hennar ljúfa skott, og segir "hvað sagði AnNaN þín *NÚ* sniðugt?"

æj finnst hún töff
...og lill syss verður það líka,
-þegar hún lærir að tala
Tongue out
núna langar mig samt mest að klípa hana í sínar yndislegu kinnar, og njóta þess að hafa hana bara litla grjónið sem hún er, en ekki krakkann sem hún á eftir að vaxa á no time upp í að verða
-sem verður samt yndislegast líka
...langar bara ekki að missa afþví!!
Muhuuu

...nenniði að setjana á hold?
-bara fyrir mig,
...í smá tíma
(eða þangað til svona sirka næsta sumar)
það væri fínt sko

allavegna
glöddu sætustu systurnar
(með hjálp foreldra sinna held ég samt)
mitt litla hjarta
...og sendu mér pakka-rass...

Ég er náttúrulega ekki í lagi
-er held ég enn að vinna úr árunum sem ég missti úr að vera sjálf krakki, þar sem ég byrjaði svo djö** snemma í barnaþrælkunarvinnu
-djók!
tryllist allavegna alltaf þegar **pakka** ber að garði
(sem gerist auðvitað ekkert oft)
...og umbreytist í barn
-eins og hendi sé veifað!!
...og ekki batnar það þegar innihald pakkans kemur í ljós
(í þessu tilfelli var t.d mjög jákvætt að Finnur var hvergi nálægt)

Nema hvað, tveir pakkar í október!!
-haldiði maður sé dekraður
...eða elsku-rófa?

Get allavegna ekki annað en montað mig,
...enda ekki á hverjum degi sem maður fær svona áþreifanlega staðfestingu á væntumþykju annara,
-í sinn garð
***mwa***
23. október 2008 klukkan 14:42
Íris Hauksdóttir
Engin athugasemd
20október

-haustiđ...

Ég er ekki frá því að haustin séu mín uppáhalds hérna í norska landinu
...þrátt fyrir að hafa heillast óendanlega af vorinu þeirra líka...

Fór í langan göngutúr áðan
...og upplifði eitt af þessum draumkenndu augnarbliknum, þegar maður þarf eiginlega að klípa sig til þess að trúa að maður sé staddur í raunverulegum heimi...
-en ekki ímyndun
Sólin skein svo skært, glampaði á vatnið og vindurinn var hlýr
(sko ekki að sjá á neinu að hér sé að koma vetur)
Nema laufunum
...sem virðast ætla halda sér í drama-litunum óvenju lengi...
Það er að segja, af mínum íslenska mælikvarða

Í fyrra, var reyndar kominn snjór og kuldi hérna í október
...svo kannski er þetta óvenjulegt, á norskan mælikvarða líka...

En ég fílaða

Kann ekkert sérstaklega vel við mig í slabbi, og hálku, og kulda
...mér finnst snjórinn samt auðvitað fallegur, þegar hann lýsir upp skammdegið...
Og ærir jólastelpuna í mér
-þá er nú aldeilis gaman að búa í jólasveinalandi

En eftir að hafa búið í útlandinu núna í rúmt ár, hef ég komist að raun um, svona útfrá mannfræðilegum athugunum humm, að norska er bara alls ekkert svo vitlaust land. Bæði haustin mín hérna í útlandinu, hafa enst talsvert (í ár MUN) lengur heldur en þau íslensku, og litasprengjurnar hér á hverju tré eru sko MIKLU meiri og áhrifaríkari heldur en þau sem við eigum að venjast. Vonandi kemur vorið svo aftur eins snemma eins og það gerði síðast, því þá, erum við aðeins að tala um tæpa fjóra mánuði í vetrarham. Af því samt ógleymdu, að norski veturinn inniheldur ekki rok, eins og Reykjavíkin kann svo vel að búa til. Hér eru engir skafrenningar eða veður-brjálæði. Neibb, bara skíðaskjór og rómantískar snjóflyksur á stærð við meðal kettling. Einkar kósý með kakóbolla, kertaljósi og eins og einu stykki kærasta.

Já sem minnir mig á það,
-hvar er kærastinn minn!
Ég er búin að vera gRaSeKkJa aðeins lengi!!
20. október 2008 klukkan 16:03
Íris Hauksdóttir
2 athugasemdir
15október

Góđćri...í kreppu?

Eftir að hafa borðað spagettí í viku
-og cherrios í þrjá daga straigt
Barst mér pakki frá Íslandi
***glaðningur***
..úr fátækralandi, frá fátækustu en jafnframt lang bestustu mömmu norðan alpafjalla
Jább, hún er sko mín!!
...og ég er HEPPNUST...

Arkaði heim í SLAGVIÐRI
-sver það, held að maðurinn á efri hæðinni hafi haldið á sko ekki fötu, nei heldur TUNNU yfir höfðinu á mér alla leiðina, í og úr prófinu (og svei þeim strætóbílstjórnum sem koma korteri of seint í bansett skýlið, meina hvers eiga fátækir námsmenn að drífa sig í miðsvetrarpróf eiginlega að gjalda) og alla leiðina í og úr pósthúsinu líka (við erum alveg að tala um 5 tíma dæmi sem karlinn hefur ekki svo mikið sem tekið sér pissupásu frá tunnu-úr-hellingunni)
Var því vægast sagt eins og hundur að sundi dregin þegar ég staulaðist heim í skáp, með maskara út á kinn
...sem mér þótti smart...
En mikið var nú samt gott að koma heim úr prófinu, búið að hanga svolítið yfir mér, dag og nótt
...rétt eins og nýjustu samleigendur mínir...
-silfurskotturnar!!
Spurning samt hvað þær séu búnar að hýrast hérna lengi, nógu feitar voru þær og stórar, og samkvæmt rannsóknarvinnu minni á þeim herrans vef google ættu þær að vera langt í fimm ára gamlar, út frá stærð og fálmaragetu. Hressandi vitneskja það!!
Finnur kom með þá yfirlýsingu, að hann hlyti að hafa svona mikla herstjórn á sínu heimili, að þær þyrðu ekki út í dagsljósið fyrr en hann hefði yfirgefið samkomuna.
Alveg spurning hvort það sé satt hjá honum. En mér er meinilla við þær. Finnst minnst töff að tríla á tánum vitandi af þeim spriklandi á gólfinu. Í öllu sínu veldi.

Nema hvað gleðin var ekki LÍTIL þegar við mér blasti glaðningurinn úr heimahögunum
-ostapopp, pipp, hrískúlur, tópas og hvað eina
Já og gestgjafinn líka!!
Fyrir grasekkjuna sem eldar ekki fyrir sig eina
...held að úr því verði nú bætt hið snarasta enda gengur ekkert að tærast upp af cherriosi þótt betri helmingurinn spóki sig um í bænum sem selur MacDonalds
-þó  cheerios verði seint talið annað en herramannsmatur, það er svo sem ekki það en getur orðið doldið leiðigjarn. Líka í kreppu.
...æj á að banna þetta orð!!
15. október 2008 klukkan 13:34
Íris Hauksdóttir
3 athugasemdir
09október

...svo bregđast krosstré

Í gær var ég alveg næstum því orðin róleg, hvað þetta melting iceland ástand varðar, en í morgun fann ég svo aftur fyrir mikilli hræðslu og örvæntingu.
Held það sé bara best að hætta fylgjast með fréttum...
-í bili
Held Finnur hugsi alveg nógu mikið um þau fyrir okkur bæði
...hann er að verða hárlaus af áhyggjum karlinn

Ætla að blogga í léttari gír enda hefur margt á annars merkinarsnauða daga mína drifið, og undanfarna viku hef ég,

-borðað yfir mig af jógúrthúðuðum möndlum og súkkulaðihjúpuðum bönönum

-bætt í kjölfarið á mig nokkrum vel völdum kílóum af hreinni fitu
(ekki amalegur forði það þegar matarkisturnar fara að tæmast)

-hlustað á nýja diskinn hennar Emiliönu Torrini, og gefið góðan dóm

-hlegið mig máttlausa yfir gömlum fóstbræðrabröndurum

-grúskað í greinum Kvennablaðsins, og undrast hvort greinahöfundar hafi verið að grínast þegar þeir skrifuðu setningar á borð við;
Drengir voru aldir upp og ætlaðir til að verða sjálfbjarga menn.
En konurnar til þess að verða ósjálfstæðar alla æfi, undir stjórn og handleiðislu einhvers karlmanns, föður, bróður, eiginmanns eða húsbónda

Hefur okkur virkilega fleytt svona áfram í hafsjó kvennabaráttunnar?

-skrifað þrjár ritgerðir, skilað tveimur verkefnum og lesið undir miðsvetrarpróf
...á einni viku!

-reynt á kjænsku mína innan veggja eldhússins, og meðal annars spreytt mig á sushigerð og heimabakaðri pizzu með kjúkling og rjómaosti. Vert er að taka fram að báðar tilraunir heppnuðust vonum framar.

-endurnýjað gamla vináttu, og verið þakklát fyrir öllu því góða fólki sem ég á, og standa mér nálægt

-lesið bókina The Body Project, Glerkastalinn (mjögmjöggóð!), Strákinn í Röndóttu Náttfötunum, 19 mínútur og Sumarljós og svo kemur nóttin.
Og glaðst mjög yfir því að sú síðastnefnda skuli einmitt verða jólasýning Þjóðleikhússins í ár.
...þetta eru þó aðeins þær bækur sem ég hef lesið og get með góðri samvisku mælt með, ég hef eðli námsins vegna lesið miklu fleiri bækur nýlega en enga sem ég mæli neitt sérstaklega með

-dreymt undarlega drauma, margar nætur í röð

-klökknað yfir sjónvarpsauglýsingum á animal planet, og efast í kjölfarið um geðheilsu mína

-samglaðst vinum, yfir að sumarið 2008 hafi ekki bara verið barnasumarið mikla, því sumarið 2009 stefnir í að verða brúðkaupssumar mikla.
Og ég sem hef aldrei farið í brúðkaup!

- drukkið kaffi á kaffihúsi og skoðað notuð spil í sölutjaldi

-saknað hífandi roks, í Reykjavík

-sprungið úr orku og andleysi á sama tíma

-velt fyrir mér kaldhæðni þess að vera ofur húsmóðir, sem bakar og þrífur eins og engin sé morgundagurinn, og les kynjafræði þess á milli

-hlustað á mannbætandi mjúsík, efst í huga smellir á við I Have A Dream og Thank You For the Music úr bíómyndinni MammaMía gottalovid og GEÐ EKKI BEÐIÐ eftir að sú stórmynd komi á DVD, eða í það minnsta vefvænt form.

-í beinu framhaldi farið að grenja mig máttlausa yfir að hafa missa af MACBETH einni blóðugustu sýningu uppáhalds leikhússins

Svo bara þetta same old, kjassast í Finni og planilagt matarboð um helgina, svona þá sjaldan maður lyftir sér upp stemningin

Verið svo góð við hvort annað greyin mín
-það er nóg pláss fyrir komment, þurfið ekkert að slást um að komast að
09. október 2008 klukkan 13:01
Íris Hauksdóttir
6 athugasemdir
07október

1stk Davíđ á hvert heimili

Ég er ekki frá því að mér líði svolítið betur eftir að hafa horft á Davíð englabossa (eins og Helga kallar hann) í Kastljósinu.
Hann er svona maður sem útskýrir hlutina á einfaldan hátt og róar sálina þó ekki sé nema bara smá. Á þessum síðustu og verstu.

Skil ekki fólk sem ræðst á Davíð
...meira að segja eFf átti smá efasemdar-moments, en ekki ég
-fannst hann líka töff að tala um óreiðumenn, í fjármálum
...held að þar hafi mamma líka verið honum sammála...
Við eigum ekki að þurfa líða fyrir, og greiða kreditkorta-fyllerís-skuldir einhverra stórgreifa, eða stuttbuxnastráka út í bæ.

Segi bara eins og betri helmingnum mínum varð á orði í kvöld
**Xnbn, Poccna Mor**
-eða lengi lifi Rússland
Ullandi
Jább maður missir sko ekkert húmorinn þó veskið sé tómt og allir gjaldeyrisjóðir lokaðir

Annars eru allir mínir **uppáhalds** vonum framar duglegir að halda utan um stelpuna sína í útlöndum
Saklaus
...sem gleður mitt litla * mjög...
Minnstu börnin voðalega dugleg að taka af sér myndir, og senda með tölvupósti sem er einstaklega skemmtilegt fyrir mig að skoða. Ískrar smá í mér, í bland við tregavæl yfir að missa af svona miklu

Þessar tvær eru aðal
***mínar uppáhalds***
Sakna þeirra í drasl, og eiginlega svo mikið að það er sárt!

Skype er líka að koma sterkt inn hjá mér þessa dagana. Eiginlega algjört þarfaþing!
Bjé og Salka, (núna gengur hún undir nafngiftinni Salka síröltandi) dugleg að slá á þráðinn sem er bara gaman, enda Bjé ein eindæmum skemmtilegur og gaman að fylgjast með honum pakka sálfræðinni saman
Svalur
Amma mús notar reyndar enn gjemmsann, sem er næstum að verða alveg yesterdays news núna, á dögum ókeypis skypes en mér finnst bestast að heyra í henni líka
Koss
...og auðvitað mömmu!!
Hvar eru samt skvísurnar mínar?
SkYpE-dEiT
***soon***
07. október 2008 klukkan 21:59
Íris Hauksdóttir
2 athugasemdir
06október

11 SePtEmBeR -aftur?

Eftir að hafa fengið eitt hysterískasta hláturskast allra tíma
-í kjölfar ávarpsins áðan
Lögðumst við Finnur yfir ráðstafanir, jha eða leiðir til þess að lifa af.
Í bókstaflegri merkingu.
Held það sé alveg málið að taka bara sjóleiðina heim (væri ég sundgarpur myndi ég ekki leggja það fyrir mig, en það er því miður SÍÐUR en sú staðan)
Á Íslandi myndum við svo strita fyrir peningum, og gætum meðal annars strippað fyrir mat og öðrum nauðsynjavörum, -ef- í harðbakkan slær, eða þangað til annað kæmi í ljós.
Önnur hugmynd, og talsvert eftirsóknarverðari, er sú, að setjast hreinlega að í norskanu. Setja námið á -hold- og fundið okkur vinnu. Lágmarks vinna á norskum kjörum myndu duga sem kongungalaun, sé miðað við það fjármagn sem við höfum til umráða í dag.
-Höfum EKKI væri reyndar réttara sagt.
Gætum þá jafnvel sent fjárhagsstuðning heim til ykkar kæru vinir sem komið illa út úr veikindum krónunnar.
Æj hún er svo veik, held minningarathöfn um hana sé frekar málið núna.

Já það er nokkuð ljóst að dagar rauðvíns og snakks eru liðnir. Sjampó verður einnig í hávegum haft og tannkrem heyrir sögunni til.
Svona ef ég á að vera dramatísk.

Mér fannst satt best að segja ég vera upplifa 11 september Íslands, þegar ég horfði á ka-ásina á RÚV, rétt áðan.
06. október 2008 klukkan 17:45
Íris Hauksdóttir
1 athugasemd
05október

Af **K** tali ofl


Held það sé skynsamlegast að hafa toppinn niður í augu, þegar ástandið í þjóðfélaginu er svona svart. Ekki bara af því maður hefur ekki efni á klippingu (sem er reyndar bláköld staðreynd), heldur líka vegna þess toppurinn hindrar manni sýn. Þegar maður vill ekki sjá.
Held það sé alveg málið að leggjast bara undir hýði. Í bóksaflegri merkingu!

Sem kemur varla að sök, sófinn minn var örugglega farin að halda að ég ætlaði að skipta honum út fyrir einhvern nýrri og mýkri,svo lítið hef ég setið í honum undanfarið. En úr því verður nú án nokkurs vafa leyst á allra næstu dögum. Enda sé ég ekki fram á neitt annað en langar setur í örmum hans næstu daga, og vikur.

Svo held ég að ChEeRiOs sé alveg málið, enda er það, eins og auglýsingarnar benda svo réttilega á, hagkvæmnin uppmáluð

Annars finnst mér "krepputal" vægast sagt púkó. Tekið frá MÉR, fátækasta námsmanni norðan alpafjalla. Sver það satt að ég hef aldrei þurft að halda eins fast um vísakortið (ætlaði að segja seðlaveskið, en það eru nú ár og dagar síðan þar voru að finna einhverja skuldlausa seðla).
Eins og ***KrIstIaNsAnd** átti mikið fallegt og flott, sem í alvöru talað öskraði á mig, og grenjanði svo hástöfum þegar ég bakkaði út úr búðunum aftur. Jafn pokalaus og þegar ég kom þangað inn.
Talandi um ÁsTanD!
(frekari útlistingar á ó-öfundsverðu lífi námsmanna við niðarás má sjá á jóa-bloggi)
-123.is/kjempetorsken-

Hápunkturinn í túristaleik okkar eFf-s, í kristans, var ferð í dýragarð nokkurn, sem samkvæmt Boga, vini mínum fréttamanni, er eitt mesta túrista-attraction (ef ég leyfi mér að sletta smá) í öllu Noregslandi. Ekki amalegt það, og að sjálfsögðu mátti ég ekki til þess hugsa að þar væru litlir **simbar** að spássera um, án þess að ég fengi smá að skoða. Helst samt að klappa. Þannig Finnur fór með stóra barnið sitt í dýragarðinn. Túristadjöfull og lúðinn sem ég get alltaf verið.
Læt nokkrar myndir fylgja með

Finnur gerir sig líklegan til að slátra einni PeppersPizzu, já við höfðum s.s hvorki borð né stóla, enda háklassahótel. Svo rúmið varð bara að duga.

Komin í dýragarðinn
-túristadraslið og skilningsríki kærastinn-

Þetta var svona líka flottur garður!

...með rennibrauð og hvað eina...

En auðvitað brunuðum við beint í ljónin
...sem léku á alls oddi...
(ég er btw ENN að bíða eftir að Finnur gefi mér ljónsunga)
Langar ***svo*** í einn soleiðis!

Svo þurfti náttúrulega að gefa honum þessum að borða

Og eftir það gátum við haldið áfram að skoða
-þennan fína SebraHest-

...og GíraFa...

-kíktum svo í hitabúr hjá svona sætum apa-
(ég og hann þurftum greinilega smá að ræða málin)

...FlaminGó-fuglar, alltaf klassískir á svona stöðum...

En síðasta kvöldið, þegar við vorum orðin "húsnæðislaus" eða réttara sagt búin að skila af okkur hótellyklinum, splæstum við í eina máltíð, utan veggja hótelsins (borðuðum annars alltaf heima, sveitta en ofar öllu ódýra máltíð)
Leituðum s.s á náðir sportklúbbs nokkurs, sem leyfði okkur að hinkra eftir lestinni, en hún lagði ekki af stað fyrr en kl 2 aðfara nótt laugardags.
...til allrar lukku fór hún ekki seinna en 2 því lúðarnir sem norðmenn eru, loka öllum börum þegar klukkan slær 2...
Þarna fengum við samt sem áður þá bestu máltíð sem við höfum þurft að borga fyrir í norskanu
-enda erum við með svo eindæmum miklir snillingar í eldhúsinu sjálf og þurfum því aldrei að leita á náðir veitingahúsa
(lesist: lygi sem gott er að temja sér í fjárhagsböggum)
Önnur ástæðan gæti líka verið sú að hin kvöldin fjárfestum við aðeins í því ódýrasta (þó sportklúbbs samlokan geti reyndar ekki talist til hágæða máltíðar) þá bragðaðist hún eins og veisla móts við Mac ógeðið sem ég hafði látið ofan í mig dagana áður.
Oj deyi MacDonalds!

Annars er ég bara hress, búin að sofa lestarferðina af mér og tilbúin í næsta læru-slag, en af nógu er að taka þar, sem er bara gaman!
05. október 2008 klukkan 13:18
Íris Hauksdóttir
2 athugasemdir

Ađalvalmynd

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Ţennan mánuđ: ...
  • Frá upphafi: ...

Auglýsing

Tenglar

Innskráningar kubbur

Flokkar