12apríl
...nćsta stopp, Ísland !!
Get ekki beðið, er rétta orðið
Gerði lista af gamni, yfir allt sem er mitt uppáhalds, á Íslandi, eða eins og ég sagði á facebook, fyrir þá sem ekki eiga svoleiðis....smá í anda Sound of music, ,,these are the few of my favorite things"
....þá var ég reyndar bara að tala um þrista og EvuKatrínu ***
...sem eru auðvitað -b-e-s-t-u-s-t- bæði tvö !!
Soðin fiskur er þar efstur á blaði, auk fisks í sósu, sem aðeins Hofgerðismenn kunna að laga fram af sinni stöku snilld. Jább þeir eru farnir að þekkja mig blessaðir félagarnir þegar ég kem korteri fyrir flug með fisklistann minn

Fiskibollurnar þeirra eru líka aðal. Og þær eru klárlega á topp tíu listanum mínum yfir -TODO- á Íslandi, þó ég geymi alltaf nokkrar slíkar í frystinum mínum norska

Flatkökur með kæfu og skonsur með osti, sykurstertur eplasvali og ekta egils mix, og appelsín, tróna líka á toppnum. Formkaka og sjónvarpskaka hjá ömmu-aðal-mús, og réttur 65 á Nings. Hlakka líka mjög til að prófa nýja Tofu-réttinn þeirra. Kjúklingur frá Spar, nýjustu pizzunar frá Dominos bíða mín líka spenntar sem og bíópopp og nammiland. Hnetutoppur og kjörís beint úr vél, ýmist með daim eða peakanhnetum, allt eftir smekk. Marsípan vínarbrauð frá Lindarbakaríi og KFC ef ég er í skapi til að sukka.
Löns, bæði á Vegamótum og Iðuhús-sushi í bestustum félagsskap og kaffi á kaffitár, í Bankastræti. Rölt upp og niður laugarveginn og rútur með Rósu. Sumarbústaður með Ísfólkinu og deit með bestum mínum bjútís. Trítill Tásuson og trúnó með Beggu eru líka ofarlega á lista sem og óteljandi leikhúsferðir með Lárunni minni, og svo auðvitað kaffihúsa-spjall eftir sýningar langt fram á nóttu. Tónleikar og aðrir menningarviðburðir með múttu sín og kærleiksknús með Evu Katrínu yndisgulli. Próflokafögnuður á forsýningu Söngvaseiðs með elskulegri Önnu Sóley og afmælisfögnuður með öllum fallegu vinkonunum sem ég á. Vídjo-tjill og annað hversdags er svo samviskusamlega skráð á stefnuskránna fyrir utan gönguferðir í okkar elskulega elliðarárdal, gufu og pottatjill með Finninum mínum.
Kosningapartý, reunion með gamla Snælandsskóla-genginu og laumuferð á Kardemommubæinn, þrátt fyrir að salurinn sé uppbókaður út júní gera góða Íslandsdvöl jafnvel enn skemmtilegri. Jább gott að þekkja góða að í leikhúsinu, sem og annarstaðar

Jú svo þarf ég víst líka að heimsækja gamla vin minn, tannlækninn og taka nokkur próf, en hver er svo sem að telja

Bara það eitt að FLETTA mogganum, fær mig til að hrisstast úr spenningi. Bónusferðir eru líka óhugarlega heillandi, sem og Hagkaup, sem er náttúrulega bara aðal. Merkilegt alveg hvað hversdagsleikinn getur heillað, svona þegar hann er víðs fjarri.
....svo þegar ég kem aftur til norska verður sko ekki bara komið vor, heldur HÁ-sumar, svona í það minnsta ef norski stendur við sín loforð

Hafið það annars ósköp gott um páskana elskur ***
-held satt best að segja að Finnur ætli að drepa mig á öllu þessu áti sem hann laðar fram á hverjum degi, hver stórsteikin á fætur annari, eða kannski er hann bara svona klár að búa til veislumat úr naglasúpu